fan vad du är sexig
05.03.2007 18:05:21 / Ágúst

Stór áfangi eða upphafið að endinum?

Sendi loksins fyrstu 20 síðurnar úr meistarastykkinu til leiðbeinandans í dag.

Bíð núna milli vonar og ótta.

Verða fyrirmælin ok haltu áfram!, Hvaða andskotans bull er þetta drengur?, eða eitthvað enþá verra?

Rakel og Palli gistu í sveitasælunni aðfararnótt sunnudags. Vorum alveg massa dugleg á laugardeginum og settum saman einhverskonar beinagrind fyrir norrænu keppnina. Svo er bara stóra spurningin hvað lifir af eftir fund hjá Björgu á fimmtudaginn.

Komumst reyndar að því þegar fórum á fætur á sunnudeginum að við hefðum alveg eins getað hætt á laugardagskvöldið og farið hvert til síns heima, þar sem afköst sunnudagsins voru ekki stór merkileg. Komumst reyndar að því að það sem við vorum komin með var alls ekki svo vitlaust að okkar mati, þannig að ákveðið var að láta það duga og fara hvert í sitt horn að lesa.

10 mínútum eftir að þau voru farin var ég hins vegar sofnaður;)

well 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 11:12:24 / Ágúst

Hokey

Smá update

Próf búin

Útskriftarveislur búnar en ég komst ekki vegna fokking flensu

Ritgerð ekki búin  fékk panikkast á föstudag þegar ég hélt að ritgerðin yrði ekki lengri en þrjár blaðsíður þ.e. ,,Er samþykkt deiliskipulags bindandi stjórnvaldsákvörðun? Nei? og þetta hefði þurft að vera endur tekið ca. 3000 sinnum til að fylla upp í 3 bls.

Andaði svo djúpt og fór í að lesa danskar heimildir og allt blev godt

Neitaði að vera með í Norrænu keppninni v. tímaskorts

Var sjanghæaður með valdi og hótunum í að vera með í keppninni. Einmitt ég á að vera í sókn þ.e. kæra til MDE brot á mannréttindum einhverra blásaklausra svía og ég sem hef alltaf haldið því fram að mannréttindi séu stórlega ofmetin og að vettugi virðandi. Kemur til með að koma vel út í ræðu.

En eins og alltaf þegar maður heldur að ekki séu nógu margir tímar í sólarhringnum til að ná að gera allt sem stefnt er að s.s. að skila ritgerð 4. maí (ekki komnar nema 20 síður) og skila greinargerð í keppninni í enda mars (beinagrind á mánudag) þá er hægt að eyða ótrúlega miklum tíma á netinu.

Vissuð þið t.d. að AP tók þá upplýstu ákvörðun að fjalla ekki um Paris Hilton í einhverja daga?

Tjenare 


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 16:03:59 / Ágúst

Damn hvað ég er duglegur að læra

Ja kanski er þetta ekki alveg satt en ég er allavega búinn að reyna síðan ég fór á fætur. Einkennilegt hvað hægt er að láta sér detta margt í hug annað en að sitja við tölvuna. Eða þegar þú situr við tölvuna hvað hægt er að gera margt annað en að svara spurningum í félagarétti. Skil t.d. ekkert í því afhverju Mbl er ekki updeitað oftar. Að maður tali ekki um allt annað sem hægt er að skoða á netinu:^)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 19:48:49 / Ágúst

úbbs skyldi ritgerðarefnið mitt verða í hættu?

Bara allt að verða vitlaust! Meirihlutinn í Árborg sprunginn út af skipulagsmálum. Ekki var það eitthvað sem hvarflaði að nokkrum manni. Hvað verður næst? Heyrði því fleygt að samfylkingin setti það sem skilyrði fyrir að hoppa upp í með sjálfstæðisflokknum væri að sjallarnir beittu þrýstingi til að fá ÁJ af lista sjalla fyrir kosningar í vor. Já ég er s.s. búinn að ná því að kosningarnar eru ekki á þessu ári Viggi. Veit nú ekki hvort það er gott múv hjá krötunum að vilja ÁJ út. Held að það væri nú helst til að tryggja þeim atkvæði að halda honum þar inni.

En er ekki týpískt að þegar maður á að vera að læra undir próf þá verður allt í einu mjög mikilvægt að blogga.

:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 19:05:53 / Ágúst

Va fa napoli!!!!!

Hvað í andskotanum er að fólki? Hverjum datt virkilega í hug að setja Árna Johnsen í 2. sæti hjá sjálfstæðisflokknum í suðurkjördæmi. Að fá þennann f.... mann aftur á þing er eitt stærsta djók sem ég hef heyrt um. Eins með að Guðrúr Ögmunds detti af þingi, greinilegt að hommar og lesbíur þurfa að fara að passa sig eftir að missa hana af þingi og fá Vestmanneyja fíflið inn í staðinn. Ekki líklegt að þau skipti komi til með að ýta undir að trúfélögum verði gefin heimild til að gefa saman samkynhneigða. Ekki þarf að óttast að ég kjósi sjálfstæðisflokkinn þetta árið. 

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 20:02:37 / Ágúst

Hus i Helvete

Ég var alveg búinn að gefa upp á bátinn að fara á norræna viku þennan veturinn en svo kemur inbjudan á Codex vikuna og þá er maður ekki lengi að skipta um skoðun er það bara af því þau geta bara tekið á móti 20 manns? Hvað á maður eiginlega að gera. Annars er helst að frétta að skólinn er byrjaður alltaf soldið gaman að fara í skólann og hitta liðið aftur bara spurning hvað sú ánægja stendur lengi. Flutti í gær ekki nema þriðja skiptið sem ég flyt á Eggertsgötuna vona að það sé líka síðasta skiptið er ekki alveg mitt helsta áhugamál að standa í flutningum. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 09:00:43 / Ágúst

Halló

Ef einhver veit af einhverjum sem ætlar að framleigja íbúð á görðunum í vetur þá veit ég um mjög áhugasaman leigjanda(nei það er ekki búið að henda mér út)

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 08:56:45 / Ágúst

Alvara lífsins

Þá er raunveruleikinn tekinn við búinn að vera einn dag í vinnunni og Nota Bene var bláedrú um helgina geri aðrir betur. Heimferðin á miðvikudaginn gekk framar vonum við Sibbi eyddum deginum í Köben þar sem kannaðar voru ólíkar bjórtegundir og að sjálfsögðu var veðrið algjörlega með besta móti. Var síðan svo heppinn að 10. bekkur í skólanum á Stokkseyri og Eyrarbakka var að fara heim með sama flugi og ég þannig að ég gat tékkað mig inn með þeim og losnaði því við gífurlegan kostnað vegna yfirvigtar varð reyndar að senda 10 kíló heim með pósti því ég einfaldlega gat ekki lokað töskunni með öllu draslinu (hefði átt að gera meira grín að Kolbrúnu og hennar farangri) Eyddi síðan helginni og fimmtudeginum í að reyna að koma íbúðinni í íbúðarhæft ástand, sparslað og málað og eitrað fyrir músum. Komst að því að Mars súkkulaði er bráðdrepandi allavega fyrir mýs þegar búið er að setja það í gildru. Svíar setjið símanúmerin ykkar í komment eða á Msn þar sem ég er búinn að týna þeim öllum!

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 18:21:20 / Ágúst

Prógramm síðustu vikunnar

Þá er nú heldur betur að styttast í heimferð:cry:;) í tilefni þess er ansi stíft prógramm framundan. Í kvöld á að halda á Vest Göta nation að djamma með hinum skiptinemunum (síðasti séns að reyna að mingla eitthvað við þetta lið sem að mestu leiti hefur ekki verið minn tebolli) á morgun er svo Brúnkåt að halda heim á leið og verður í tilefni þess hópferð Íslendinga í Tivoli í Köben (svona aðeins til að ryfja upp dönsku kunnáttuna) Föstudag og laugardag er svo fyrirhuguð hópferð um Skåne og nágrenni (vegna fjölda fyrirspurna var ákveðið að stækka bílaleigubílinn úr Nissan Micra í Opel Astra). Á sunnudag er svo stefnan sett á Hróarskelldu til að heimsækja Áslaugu og Jónas (já já ég var svo sem ekkert alltaf í heimsókn þegar þau bjuggu í Þorlákshöfn en allt annað í útlöndum) Mánudag þvo og skila sæng o.s.frv. og hveðja í Dalby, þriðjudag þvælast í Lundi (óvenjulegt) skila glósum til Skarpa o.þ.h. Miðvikudagur pakka, þrífa hveðja á Korridorinu og svo kl. 21 45 flug. 01 30 NAFLI ALHEIMSIN. (að sjálfsögðu eru fyrirhuguð partý og tilheyrandi öll kvöldin en staðsetning o.fl. er óvitað) 

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 12:01:11 / Ágúst

Jibbý

Ritgerð loksins farin í póst einungis eftir að svara spurningum í fyrramálið (sem ég by the way hef ekki hugmynd um hvernig á að svara) svo er formlegum lærdómi lokið og hægt að senda bækur og eitthvað fleirra í pósti heim til að losna við yfirvigt. Fékk áðan áminningu frá Iceland Express um að ég ætti flug heim að kvöldi 7. júní (eins og ég hefði verið búinn að gleyma því) Lendi 22:45 eins gott að einhver sæki mig8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 18:20:34 / Ágúst

Nýjar myndir

bæ ðe wey nýjar myndir komnar á netið en þar sem ég er með svo lélegt úthald í að taka myndir bendi ég bara á myndasíðurnar hjá Sigurjóni, Kollu og Védísi fyrir þá sem langar að sjá meira.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 18:19:20 / Ágúst

Okey okey

Ég veit að næstum því allar færslur á þessari blogsíðu hafa fjallað um áfengi á einn eða annan hátt og ætla því ekki að breyta því. Í dag hitti ég hina litháensku Astu á kaffihúsi svona til að fara yfir með henni hvað hún þarf að gera áður en hún flytur úr siðmenningunni í snjóhúsin á Íslandi (jú það vita jú allir að Ísland heitir Ísland af því það er bara ís og allir búa í igloo) Eftir mjög svo fræðandi samræður (lofaði m.a. að að sjálfsögðu skyldi ég fara með þær systur á Gullfoss og Geysi (kanski bara á Prikinu ef annað tekst ekki)) sagði hún að þar sem ég væri búinn að vera svo hjálplegur í þessari miklu óvissuferð sem hún væri að takast á hendur þá væri hún með gjöf handa mér :D:D:D:D dregur hún ekki upp fulla vodkaflösku og segir að það sé miklu nær að ég drekki þetta en hún:haha::haha::haha: úbbs eiginlega er staðan þannig að þar sem bara tvær vikur eru eftir þá er ég alls ekki viss um að ég nái að klára allt áfengið sem enþá er til gin, vodka, rauðvín, hvítvín, brennivín og 66% Absinth. Jahá nú lágu danir í því hvernig á maður að afþakka áfengi án þess að hljóma eins og einhver bindindispostuli :$ þannig að baða eitt í stöðunni byrja að drekka :haha:
Nei annars fór bara heim og reyndi að fá fleirri heimildir í ritgerðina (lookar miklu flottara ef heimildaskráin er löng þannig að fann tvær greinar á netinu copy pastea bara eins og eina setningu úr hvorri og vohla kominn með tvær auka heimildir:P)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 09:40:37 / Ágúst

Karnivali lokið

Þá er maður loksins að komast til veruleikans eftir mjög erfiða helgi. Á miðvikudaginn var ákveðið að þar sem þetta væri nú alveg að verða búið yrðum við hreinlega að fara á Nation um kvöldið og að sjálfsögðu var látið verða af því enda ritgerðin næstum því tilbúin og því ekki svo mikil pressa í gangi. Á fimmtudag var síðan haldið í íslenskt Eurovision partý heima hjá Védísi þar sem tekið var hressilega á því og fagnað hrikalega Svíunum á svæðinu til mikillar furðu þeir voru ekki alveg að skilja þennan gríðarlega áhuga. Strákarnir á ganginum hjá mér eru búnir að stimpla Íslendinga sem mjög skrítinn þjóðflokk með allan þennan Eurovision áhuga. Á föstudag byrjaði síðan Karnivalið í Lundi maður mætti á svæðið einhverntímann upp úr hádegi og rölti eitthvað um þarna varð reyndar fyrir smá vonbrigðum þetta var ekki eins svakalegt og allir voru búnir að tala um (lagaðist heldur betur stemmingin þegar leið á kvöldið) Héldum fyrirpartý heima hjá mér byrjaði í einhverju drykkju spili með svíunum á ganginum og vinum þeirra, Sibbi og Torfi bættust síðan í hópinn og ég verð að viðurkenna að þetta var spil sem virkaði alveg hressilega. Stelpurnar mættu síðan seinna (að sjálfsögðu) og flúðu þá Svíarnir fljótlega niður á neðri hæðina (hvað er eiginlega með Ágúst og þessa Ísraelsku vini hans var kommentið frá einum Svíanum) Klara sænsk vinkona Sjönu var með í hópnum og hún lýsti þessu daginn eftir "allir voru að syngja og eina sem ég skyldi var öpna ögun og Nína (jebb Nína var tekin ca. 20 sinnum á fullu blasti þetta var eins og klikkað laganema djamm á stúdentakjallaranum) Ég ákvað einhverntíma í miðri nínu að hringja í Carinu og leifa henni að heyra hvað Nína væri góð surprise surprise hún var óvart steinsofandi og ekki sama stemming í Gautaborg og Lundi óvart bara að fara í próf. Fórum síðan á ball sem átti að vera massivasta skemmtun ever en urðu vonbrigði ársins engin af stelpunum komst inn þar sem (að sjálfsögðu voru þær lengur á leiðinni en við) eittvað smá fokk upp hafði verið í skipulagningunni og margir komust inn án miða til að byrja með. Stemmingin var síðan síldartunnu teknó þannig að svæðið var yfirgefið fljótlega. Laugardagur var síðan tekinn með skrúðgöngu (verð að játa að Gay-pride gangan ef flottari) og Eurovision partý nr. 4 (alveg snilld að vera í útlöndum þá eru endalaus Eurovision partý) Þemað var White Trash og verður að viðurkennast að það var alveg að virka myndir koma síðar. Endaði með að nágrannarnir komu og sögðust hringja á Lögguna ef við hættum ekki að syngja Nínu (ok ok hún hefði átt að vinna þegar druslan hún Carola vann 91) Sunnudagurinn var síðan tekinn í algjörum rólegheitum orkaði ekki að fara á tónleikana sem voru samt víst mjög góðir (aldurinn að segja til sín???) Er síðan með síðustu kynninguna í dag þannig að skólinn er loksins alveg að verða búinn. Á síðan eftir að ákveða hvort ég nenni til Malmö eða Köben til að kjósa í kosningunum 

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 19:22:34 / Ágúst

Kom vel á vondann

Sem betur fer var ég ekki búinn að storma til Malmö til að kjósa utankjörstaðar. Ekki víst að menn verði jafn viljugir að fá Eyþór sem bæjarstjóra eftir að hafa verið böstaður fullur svona korteri fyrir kosningar. Fyndið líka að Geir skuli taka þessu sem að hann hafi "lent" í þessu svona eins og Böddi greyið sem "lenti í framhjáhaldi" Spurning reyndar hvort að Eyþór fái extra prik fyrir að vera svona góður strákur og ætla að smella sér í meðferð. Eins skil ég ekki hvort hann ætlar að bíða með að taka sæti í bæjarstjórn þangað til hann er kominn með bílpróf aftur það er nottlega skilyrði að bæjarfulltrúar séu allir með bílpróf skondið kjörgengisskilyrði það:haha::haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 10:05:16 / Ágúst

Grey Framsókn

Eftir að hafa kíkt öðruhvoru á bloggið hans Bjarna Más er maður næstum því farinn að vorkenna framsóknarflokknum. Ég meina einu aðstoðarmennirnir sem þeir greinilega fá kunna ekki á umferðarmerki og svo þurfti einhver helvítis paparazzzi að vera viðstaddur þennan borgarafund í Gravarvogi. Eins og þeir hafi mátt við því að missa fylgi. Ég ætla bara að vona að Sunnlendingar lesi líka bloggið hans Bjarna svo þeir fari ekki að aulast til að kjósa framsóknarflokkinn í Árborg. Einhvernveginn verð ég að viðurkenna þó að ég held ég teljist pólitískt viðrini þá sé ég einhvernveginn minnst fylgjandi framsókn:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4