fan vad du är sexig
Stór áfangi eða upphafið að endinum?
Vorum alveg massa dugleg á laugardeginum og settum saman
einhverskonar beinagrind fyrir norrænu keppnina. Svo er bara stóra
hefðum alveg eins getað hætt á laugardagskvöldið og farið hvert til
síns heima, þar sem afköst sunnudagsins voru ekki stór merkileg.
Komumst reyndar að því að það sem við vorum komin með var alls ekki
svo vitlaust að okkar mati, þannig að ákveðið var að láta það duga
Hokey
að ritgerðin yrði ekki lengri en þrjár blaðsíður þ.e. ,,Er samþykkt
deiliskipulags bindandi stjórnvaldsákvörðun? Nei? og þetta hefði
þurft að vera endur tekið ca. 3000 sinnum til að fylla upp í 3
Einmitt ég á að vera í sókn þ.e. kæra til MDE brot á mannréttindum
einhverra blásaklausra svía og ég sem hef alltaf haldið því fram að
mannréttindi séu stórlega ofmetin og að vettugi virðandi. Kemur til
tímar í sólarhringnum til að ná að gera allt sem stefnt er að s.s.
að skila ritgerð 4. maí (ekki komnar nema 20 síður) og skila
greinargerð í keppninni í enda mars (beinagrind á mánudag) þá er
Damn hvað ég er duglegur að læra
síðan ég fór á fætur. Einkennilegt hvað hægt er að láta sér detta
margt í hug annað en að sitja við tölvuna. Eða þegar þú situr við
tölvuna hvað hægt er að gera margt annað en að svara spurningum í
félagarétti. Skil t.d. ekkert í því afhverju Mbl er ekki updeitað
oftar. Að maður tali ekki um allt annað sem hægt er að skoða á
úbbs skyldi ritgerðarefnið mitt verða í hættu?
skipulagsmálum. Ekki var það eitthvað sem hvarflaði að nokkrum
manni. Hvað verður næst? Heyrði því fleygt að samfylkingin setti
það sem skilyrði fyrir að hoppa upp í með sjálfstæðisflokknum væri
að sjallarnir beittu þrýstingi til að fá ÁJ af lista sjalla fyrir
kosningar í vor. Já ég er s.s. búinn að ná því að kosningarnar eru
ekki á þessu ári Viggi. Veit nú ekki hvort það er gott múv hjá
krötunum að vilja ÁJ út. Held að það væri nú helst til að tryggja
En er ekki týpískt að þegar maður á að vera að læra undir próf þá
Va fa napoli!!!!!
setja Árna Johnsen í 2. sæti hjá sjálfstæðisflokknum í
suðurkjördæmi. Að fá þennann f.... mann aftur á þing er eitt
stærsta djók sem ég hef heyrt um. Eins með að Guðrúr Ögmunds detti
af þingi, greinilegt að hommar og lesbíur þurfa að fara að passa
sig eftir að missa hana af þingi og fá Vestmanneyja fíflið inn í
staðinn. Ekki líklegt að þau skipti komi til með að ýta undir að
trúfélögum verði gefin heimild til að gefa saman samkynhneigða.
Ekki þarf að óttast að ég kjósi sjálfstæðisflokkinn þetta
Hus i Helvete
þennan veturinn en svo kemur inbjudan á Codex vikuna og þá er maður
ekki lengi að skipta um skoðun er það bara af því þau geta bara
tekið á móti 20 manns? Hvað á maður eiginlega að gera. Annars er
helst að frétta að skólinn er byrjaður alltaf soldið gaman að fara
í skólann og hitta liðið aftur bara spurning hvað sú ánægja stendur
lengi. Flutti í gær ekki nema þriðja skiptið sem ég flyt á
Eggertsgötuna vona að það sé líka síðasta skiptið er ekki alveg
Halló
görðunum í vetur þá veit ég um mjög áhugasaman leigjanda(nei það er
ekki búið að henda mér út)
Alvara lífsins
og Nota Bene var bláedrú um helgina geri aðrir betur. Heimferðin á
miðvikudaginn gekk framar vonum við Sibbi eyddum deginum í Köben
þar sem kannaðar voru ólíkar bjórtegundir og að sjálfsögðu var
veðrið algjörlega með besta móti. Var síðan svo heppinn að 10.
bekkur í skólanum á Stokkseyri og Eyrarbakka var að fara heim með
sama flugi og ég þannig að ég gat tékkað mig inn með þeim og
losnaði því við gífurlegan kostnað vegna yfirvigtar varð reyndar að
senda 10 kíló heim með pósti því ég einfaldlega gat ekki lokað
töskunni með öllu draslinu (hefði átt að gera meira grín að
Kolbrúnu og hennar farangri) Eyddi síðan helginni og fimmtudeginum
í að reyna að koma íbúðinni í íbúðarhæft ástand, sparslað og málað
og eitrað fyrir músum. Komst að því að Mars súkkulaði er
bráðdrepandi allavega fyrir mýs þegar búið er að setja það í
gildru. Svíar setjið símanúmerin ykkar í komment eða á Msn þar sem
ég er búinn að týna þeim öllum!
Prógramm síðustu vikunnar
er ansi stíft prógramm framundan. Í kvöld á að halda á Vest Göta
nation að djamma með hinum skiptinemunum (síðasti séns að reyna að
mingla eitthvað við þetta lið sem að mestu leiti hefur ekki verið
minn tebolli) á morgun er svo Brúnkåt að halda heim á leið og
verður í tilefni þess hópferð Íslendinga í Tivoli í Köben (svona
aðeins til að ryfja upp dönsku kunnáttuna) Föstudag og laugardag er
svo fyrirhuguð hópferð um Skåne og nágrenni (vegna fjölda
fyrirspurna var ákveðið að stækka bílaleigubílinn úr Nissan Micra í
Opel Astra). Á sunnudag er svo stefnan sett á Hróarskelldu til að
heimsækja Áslaugu og Jónas (já já ég var svo sem ekkert alltaf í
heimsókn þegar þau bjuggu í Þorlákshöfn en allt annað í útlöndum)
Mánudag þvo og skila sæng o.s.frv. og hveðja í Dalby, þriðjudag
þvælast í Lundi (óvenjulegt) skila glósum til Skarpa o.þ.h.
Miðvikudagur pakka, þrífa hveðja á Korridorinu og svo kl. 21 45
flug. 01 30 NAFLI ALHEIMSIN. (að sjálfsögðu eru fyrirhuguð partý og
Jibbý
fyrramálið (sem ég by the way hef ekki hugmynd um hvernig á að
svara) svo er formlegum lærdómi lokið og hægt að senda bækur og
eitthvað fleirra í pósti heim til að losna við yfirvigt. Fékk áðan
áminningu frá Iceland Express um að ég ætti flug heim að kvöldi 7.
júní (eins og ég hefði verið búinn að gleyma því) Lendi 22:45 eins
gott að einhver sæki mig8)
Nýjar myndir
lélegt úthald í að taka myndir bendi ég bara á myndasíðurnar hjá
Sigurjóni, Kollu og Védísi fyrir þá sem langar að sjá meira.
Okey okey
um áfengi á einn eða annan hátt og ætla því ekki að breyta því. Í
dag hitti ég hina litháensku Astu á kaffihúsi svona til að fara
yfir með henni hvað hún þarf að gera áður en hún flytur úr
siðmenningunni í snjóhúsin á Íslandi (jú það vita jú allir að
Ísland heitir Ísland af því það er bara ís og allir búa í igloo)
Eftir mjög svo fræðandi samræður (lofaði m.a. að að sjálfsögðu
skyldi ég fara með þær systur á Gullfoss og Geysi (kanski bara á
Prikinu ef annað tekst ekki)) sagði hún að þar sem ég væri búinn að
vera svo hjálplegur í þessari miklu óvissuferð sem hún væri að
takast á hendur þá væri hún með gjöf handa mér :D:D:D:D dregur hún
ekki upp fulla vodkaflösku og segir að það sé miklu nær að ég
drekki þetta en hún:haha::haha::haha: úbbs eiginlega er staðan
þannig að þar sem bara tvær vikur eru eftir þá er ég alls ekki viss
um að ég nái að klára allt áfengið sem enþá er til gin, vodka,
rauðvín, hvítvín, brennivín og 66% Absinth. Jahá nú lágu danir í
því hvernig á maður að afþakka áfengi án þess að hljóma eins og
einhver bindindispostuli :$ þannig að baða eitt í stöðunni byrja að
Nei annars fór bara heim og reyndi að fá fleirri heimildir í
ritgerðina (lookar miklu flottara ef heimildaskráin er löng þannig
að fann tvær greinar á netinu copy pastea bara eins og eina
Karnivali lokið
helgi. Á miðvikudaginn var ákveðið að þar sem þetta væri nú alveg
að verða búið yrðum við hreinlega að fara á Nation um kvöldið og að
sjálfsögðu var látið verða af því enda ritgerðin næstum því tilbúin
og því ekki svo mikil pressa í gangi. Á fimmtudag var síðan haldið
í íslenskt Eurovision partý heima hjá Védísi þar sem tekið var
hressilega á því og fagnað hrikalega Svíunum á svæðinu til mikillar
furðu þeir voru ekki alveg að skilja þennan gríðarlega áhuga.
Strákarnir á ganginum hjá mér eru búnir að stimpla Íslendinga sem
mjög skrítinn þjóðflokk með allan þennan Eurovision áhuga. Á
föstudag byrjaði síðan Karnivalið í Lundi maður mætti á svæðið
einhverntímann upp úr hádegi og rölti eitthvað um þarna varð
reyndar fyrir smá vonbrigðum þetta var ekki eins svakalegt og allir
voru búnir að tala um (lagaðist heldur betur stemmingin þegar leið
á kvöldið) Héldum fyrirpartý heima hjá mér byrjaði í einhverju
drykkju spili með svíunum á ganginum og vinum þeirra, Sibbi og
Torfi bættust síðan í hópinn og ég verð að viðurkenna að þetta var
spil sem virkaði alveg hressilega. Stelpurnar mættu síðan seinna
(að sjálfsögðu) og flúðu þá Svíarnir fljótlega niður á neðri hæðina
(hvað er eiginlega með Ágúst og þessa Ísraelsku vini hans var
kommentið frá einum Svíanum) Klara sænsk vinkona Sjönu var með í
hópnum og hún lýsti þessu daginn eftir "allir voru að syngja og
eina sem ég skyldi var öpna ögun og Nína (jebb Nína var tekin ca.
20 sinnum á fullu blasti þetta var eins og klikkað laganema djamm á
stúdentakjallaranum) Ég ákvað einhverntíma í miðri nínu að hringja
í Carinu og leifa henni að heyra hvað Nína væri góð surprise
surprise hún var óvart steinsofandi og ekki sama stemming í
Gautaborg og Lundi óvart bara að fara í próf. Fórum síðan á ball
sem átti að vera massivasta skemmtun ever en urðu vonbrigði ársins
engin af stelpunum komst inn þar sem (að sjálfsögðu voru þær lengur
á leiðinni en við) eittvað smá fokk upp hafði verið í
skipulagningunni og margir komust inn án miða til að byrja með.
Stemmingin var síðan síldartunnu teknó þannig að svæðið var
yfirgefið fljótlega. Laugardagur var síðan tekinn með skrúðgöngu
(verð að játa að Gay-pride gangan ef flottari) og Eurovision partý
nr. 4 (alveg snilld að vera í útlöndum þá eru endalaus Eurovision
partý) Þemað var White Trash og verður að viðurkennast að það var
alveg að virka myndir koma síðar. Endaði með að nágrannarnir komu
og sögðust hringja á Lögguna ef við hættum ekki að syngja Nínu (ok
ok hún hefði átt að vinna þegar druslan hún Carola vann 91)
Sunnudagurinn var síðan tekinn í algjörum rólegheitum orkaði ekki
að fara á tónleikana sem voru samt víst mjög góðir (aldurinn að
segja til sín???) Er síðan með síðustu kynninguna í dag þannig að
skólinn er loksins alveg að verða búinn. Á síðan eftir að ákveða
Kom vel á vondann
utankjörstaðar. Ekki víst að menn verði jafn viljugir að fá Eyþór
sem bæjarstjóra eftir að hafa verið böstaður fullur svona korteri
fyrir kosningar. Fyndið líka að Geir skuli taka þessu sem að hann
hafi "lent" í þessu svona eins og Böddi greyið sem "lenti í
framhjáhaldi" Spurning reyndar hvort að Eyþór fái extra prik fyrir
að vera svona góður strákur og ætla að smella sér í meðferð. Eins
skil ég ekki hvort hann ætlar að bíða með að taka sæti í
bæjarstjórn þangað til hann er kominn með bílpróf aftur það er
nottlega skilyrði að bæjarfulltrúar séu allir með bílpróf skondið
kjörgengisskilyrði það:haha::haha:
Grey Framsókn
næstum því farinn að vorkenna framsóknarflokknum. Ég meina einu
aðstoðarmennirnir sem þeir greinilega fá kunna ekki á umferðarmerki
og svo þurfti einhver helvítis paparazzzi að vera viðstaddur þennan
borgarafund í Gravarvogi. Eins og þeir hafi mátt við því að missa
fylgi. Ég ætla bara að vona að Sunnlendingar lesi líka bloggið hans
Bjarna svo þeir fari ekki að aulast til að kjósa framsóknarflokkinn
í Árborg. Einhvernveginn verð ég að viðurkenna þó að ég held ég
teljist pólitískt viðrini þá sé ég einhvernveginn minnst fylgjandi
framsókn:haha: